AT SUNSET
Saturday, 13th June 2026 at 17:00
Sally Matthews soprano
Simon Lepper pianist
Sally Matthews er talin ein af fremstu lýrísku sópransöngkonum sinnar kynslóðar. Hún hefur sungið í helstu óperuhúsum og tónleikasölum heims, eins og Covent Garden, Metropolitan, Wiener Staatsoper, Bayerische Staatsoper, La Monnaie, á hátíðum eins og Salzburg hátíðinni, BBC Proms, Glyndebourne og í tónleikasölum á borð við Concertgebouw, Carnegie Hall og Wigmore Hall. Hún hefur einnig unnið með mörgum af fremstu listamönnum og hljómsveitarstjórum samtímans.
Hér gefst einstakt tækifæri til að hlusta á Sally Matthews með einum af leiðandi meðleikurum okkar tíma, Simon Lepper, í óvenjulegri nánd í Hafnarborg. Á tónleikunum flytja þau gullfallegu ljóðaflokkana Rückert-Lieder eftir Gustav Mahler, Vier letzte Lieder eftir Richard Strauss og Knoxville: Summer of 1915 eftir Samuel Barber.
Hér eru á ferðinni söngtónleikar í hæsta gæðaflokki sem enginn unnandi klassískrar söngtónlistar ætti að láta fram hjá sér fara.
Forsölutilboð til 3. júní.
Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.
EFNISSKRÁ:
Gustav Mahler (1860-1911) Rückert-Lieder (Friedrich Rückert)
-Ich atmet’ einen linden Duft
-Blicke mir nicht in die Lieder!
-Liebst du um Schönheit
-Um Mitternacht
-Ich bin der Welt abhanden gekommen
Samuel Barber (1910-1981) Knoxville: Summer of 1915 (James Agee)
HLÉ
Richard Strauss (1864−1949) Vier letzte Lieder
-Frühling (Hermann Hesse)
-September (Hermann Hesse)
-Beim Schlafengehen (Hermann Hesse)
-Im Abendrot (Joseph von Eichendorff)
Sally Matthews, sópran
Sally Matthews er þekkt sem ein fremsta lýríska sópransöngkona Breta sinnar kynslóðar. Á alþjóðlegum ferli sínum hefur hún sungið á óperusviði, með sinfóníuhljómsveitum og á ljóðatónleikum. Hún hefur unnið með mörgum af fremstu listamönnum og hljómsveitarstjórum heims.
Á þessu leikári snýr Sally aftur til La Monnaie í Brussel í aðalhlutverkinu í Normu eftir Bellini og sem Alice Ford í uppsetningu Laurent Pelly á Falstaff. Hún mun þreyta frumraun sína sem Madame Lidoine í uppsetningu Roberts Carsens á Dialogues des Carmelites í Teatro Regio í Tórínó og sem Elle í tónleikaflutningi á La Voix Humaine fyrir Óperu Flanders. Hún mun einnig koma fram í uppsetningu á Requiem eftir Verdi á vegum Þjóðaróperunnar í Lorraine. Þar að auki hefur hún haldið tónleika með Konunglegu Fílharmóníuhljómsveitinni, Fílharmóníuhljómsveit Óslóar og Sinfóníuhljómsveit BBC.
Á leikárinu 2024/25 þreytti Sally frumraun sína við Staatsoper Hamborg sem Tatjana í Evgení Onegin og hún söng Ellen Orford í nýrri uppsetningu á Peter Grimes fyrir Welsh National Opera undir stjórn Melly Still og Tomáš Hanus. Sally söng einnig frumraun sína í titlhlutverkinu í Ariadne auf Naxos fyrir Opéra de Rouen undir stjórn Ben Glassberg. Hún söng í fyrsta skipti við Garsington Opera sem Leonore í uppsetningu John Cox á Fidelio og hlaut mikið lof fyrir.
Meðal nýlegra hápunkta Sally á óperusviðinu eru frumraun hennar sem Leonore í Fidelio í Berlin Staatsoper og Governess í nýrri uppsetningu á Turn of the Screw undir stjórn Andreu Breth fyrir La Monnaie í Brussel. Hún söng einnig slæga refinn í samnefndri óperu eftir Janáček og Emilíu Marty í Makropulos-málinu í Concertgebouw í Amsterdam með hollensku útvarpshljómsveitinni undir stjórn Karinu Canellakis. Meðal annarra óperuhlutverka sem hún hefur komið fram í eru Blanche de la Force í nýrri uppfærslu á Dialogues des Carmélites í leikstjórn Barrie Kosky á Glyndebourne-hátíðinni og BBC Proms; Marschallin í Rósariddaranum og Tatjana í Evgení Ónegín — bæði í La Monnaie og í Norsku þjóðaróperunni í uppsetningu Christofs Loys. Þá má nefna titilhlutverkið í Rusalka við Glyndebourne og með Þýsku sinfóníuhljómsveitinni í Berlín, Anna Ruthven í Il proscritto eftir Mercadante í Barbican með Opera Rara og Carlo Rizzi, greifynjuna Madeleine í Capriccio og titilhlutverkin í Daphne eftir Strauss og Normu eftir Bellini í La Monnaie, sem og slæga refinn fyrir Ensku þjóðaróperuna og Elísabetta de Valois í Don Carlos fyrir Óperuna í Lyon. Sally söng hlutverk Ellen Orford í tónleikum með Peter Grimes á Brisbane-hátíðinni og einnig með Sir Antonio Pappano og Accademia Nazionale di Santa Cecilia.
Sally þreytti frumraun sína á Salzburg-hátíðinni árið 2016 þar sem hún söng Silviu í frumsýningu á The Exterminating Angel eftir Adès, hlutverk sem hún endurtók í frumraun sinni í Metropolitan-óperunni og í Konunglega óperuhúsinu Covent Garden þar sem hún hefur einnig komið fram sem Fiordiligi í Così fan tutte, Sifare Mitridate, Anne Truelove í The Rake’s Progress, í titilhlutverkinu í La Calisto og Blanche de la Force í Dialogues des Carmélites eftir Poulenc. Sally þreytti frumraun sína í Wiener Staatsoper sem Donna Anna í nýrri uppfærslu á Don Giovanni undir stjórn Franz Welser Möst. Hún hefur komið reglulega fram í Bayerische Staatsoper, í titilhlutverkinu í Jenufa, sem Blanche de la Force í Dialogues des Carmélites, sem Fiordiligi og í titilhlutverkinu í frumflutningi á Alice in Wonderland eftir Ursuk Chin. Á tónleikasviðinu hefur hún komið fram með Fílharmóníuhljómsveit Lundúna í flutningi og kvikmynd á annarri sinfóníu Mahlers með Edward Gardner; fjórðu sinfóníu Mahlers með skosku sinfóníuhljómsveit BBC; í lokasenunni úr Capriccio eftir Strauss með sinfóníuhljómsveit Búkarest; Sea Symphony með Orquesta Nacional de España og 9. sinfóníu Beethovens og 4. sinfóníu Mahlers með Deutsches Symphonie-Orchester Berlin. Annars staðar hefur hún flutt Mozart og Mahler með Fílharmóníunni í Dresden undir stjórn Juanjo Mena; Vier letzte Lieder eftir Strauss með L’Orchestre Symphonique de la Monnaie og Alain Altinoglu; Wesendonck Lieder eftir Wagner með hljómsveit Opéra de Rouen og Ben Glassberg og Das Paradies und die Peri eftir Schumann með Perry So og Orquesta Sinfónica de Navarra.
Sally þreytti frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Chicago og Juanjo Mena nýlega í brotum úr Anthony and Cleopatra eftir Barber - dagskrá sem einnig var flutt á BBC Proms með BBC Fílharmóníuhljómsveitinni. Meðal annarra nýlegra tónleika má nefna Vier letzte Lieder eftir Strauss með Orchestre National de Metz og Marzena Diakun; Ein deutsches Requiem eftir Brahms með LSO og Valery Gergiev og Philharmonie Zuidnederland og Duncan Ward; Beethoven sinfónía nr. 9 með Orchestre Philharmonique de Radio France undir stjórn Mikko Franck og Mahler sinfónía nr. 4 með Lundúnafílharmóníuhljómsveitinni undir stjórn Robin Ticciati.
Sally syngur reglulega með hljómsveitum á borð við Berlínarfílharmóníuna, Lundúnasinfóníuhljómsveitina og Fílharmóníuhljómsveitina, BBC sinfóníuhljómsveitina, Rotterdam Fílharmóníuna og Bæjaralandsútvarps undir stjórn hljómsveitarstjóra á borð við Sir Antonio Pappano, Sir Simon Rattle, Sir Mark Elder, Simone Young, Franz Welser Möst, Daniel Harding og hún vann oft með bæði hinum látna Sir Charles Mackerras og Bernard Haitink.
Sally nýtur þess að syngja á ljóðatónleikum. Hún hefur reglulega komið fram í Wigmore Hall, Concertgebouw í Amsterdam og Carnegie Hall í New York, þar sem hún þreytti frumraun sína með Thomas Adès á píanó; hún hefur gefið út tónleikaplötu með Malcolm Martineau og á þessu starfsári snýr hún aftur í Wigmore Hall með Simon Lepper. Sally er handhafi Kathleen Ferrier-verðlaunanna og hún var einnig hluti af New Generation Artists Scheme á BBC Radio 3 og þátttakandi í Young Artist Program í Konunglega óperuhúsinu í Covent Garden.
Simon Lepper, Piano
Breski píanóleikarinn Simon Lepper nam tónlist við King’s College í Cambridge áður en hann sérhæfði sig í meðleik hjá Michael Dussek við Konunglega tónlistarakademíuna (Royal Academy of Music) í London og síðar hjá Ruben Lifschitz við Fondation Royaumont. Simon er núna repertoire coach við Royal College of Music í London þar sem hann er aðstoðaryfirmaður meðleiksdeildarinnar. Frá árinu 2003 hefur hann verið opinber meðleikari fyrir BBC Cardiff Singer of the World keppnina. Hann hefur haldið meistaranámskeið í Mozarteum, Fondation Royaumont, Samling Institute for Young Artists, LIFE Victoria hátíðinni í Barcelona og La Chappelle í Belgíu.
Meðal hápunkta ferils hans má nefna boð frá Wigmore Hall í London um að flytja þriggja tónleika verkefni í kringum lög eftir Joseph Marx; tónleikaferðir með Stéphane Degout, þar á meðal á Ravinia- og Edinborgarhátíðunum og í óperuhúsunum í Bordeaux, Dijon, La Monnaie, Lausanne og Lyon; tónleika í Carnegie Hall í New York með Karen Cargill og Sally Matthews og í Frick-safninu með Christopher Purves; flutning á ljóðaflokkum eftir Schubert með Gerald Finley og Mark Padmore, þar á meðal á Schubertiade í Hohenhems, tónleika með Christiane Karg í Frankfurt-óperunni, Schwarzenberg Schubertiade og Rheingau-hátíðinni.
Hann hefur haldið Schubert-tónleika með Ilker Arcayürek í Barcelona, Zürich, New York (Park Armory), San Francisco og í Wigmore Hall þar sem hann hefur einnig haldið tónleika með Dame Felicity Palmer, Karen Cargill, Sally Matthews, Stéphane Degout og Mark Padmore. Með Benjamin Appl fór hann í tónleikaferðir til Indlands, þar á meðal í Mumbai og Chennai, og lék á opnunartónleikum hæstu tónleikahallar heims í Shenzhen með Aidu Garifulina. Á næstunni má nefna tónleika í Wigmore Hall með Gweneth-Ann Rand og Benjamin Appl, með trompetleikaranum Mathildu Lloyd á ECHO Rising Stars og með söngvurum á borð við Robyn Allegra-Parton, Fleur Barron, Jess Dandy, Sylvia Schwartz, Rachael Wilson, Ronan Collett, Pablo Garcia-Lopez, Laurence Kilsby og James Newby.
Meðal plötuútgáfna hans eru tónleikadiskur með Dame Felicity Palmer, tvö bindi af Debussy-lögum og Strauss-diskur með Gillian Keith, diskur með frönskum lögum og Mahler-lögum með Karen Cargill, heildarverk sönglaga eftir Jonathan Dove með Kitty Whately og geisladiskur með samtímafiðluverkum með Carolin Widmann sem hlaut Diapason d'or verðlaunin. Hann tók upp disk tileinkaðan lögum eftir Samuel Coleridge-Taylor með Elizabeth Llewellyn, geisladisk með Schubert-lögum með tenórnum Ilker Arcayürek, disk með Ballöðum með Stéphane Degout og tónleikadiskinn „Poèmes d'un jour“ sem var valinn af Gramophone tímaritinu sem ,,Editor’s Choice“. Með sópransöngkonunni Robyn Allegra-Parton gaf hann út disk með Vínarlögum frá síðustu öld sem hét „Kona í gulli“ og með bassabarítónsöngvaranum Christopher Purves geisladisk sem hét „Sál mín, hvað óttast þú?“. Á næstunni kemur út diskur með enskum sönglögum með bassabarítónsöngvaranum Tristan Hambleton.
