Gjallandi Suor Angelica

SUOR ANGELICA EFTIR G. PUCCINI

 

Laugardagur 20. júní 2026 kl. 17:00

 

Gjallandi

Ólína Ákadóttir pianist

 

Gjallandi:

Sviðslistahópurinn Gjallandi var stofnaður sumarið 2025 af hópi kvenna sem allar stunduðu saman nám við söngdeild Listaháskóla Íslands. Hópurinn samanstendur af 8 nýútskrifuðum söngkonum sem vilja skapa sér og öðrum ungum listamönnum fjölbreytt verkefni á sviði sviðslista. Sem sitt fyrsta verkefni, í júlí 2025, setti Gjallandi upp óperuna Suor Angelica eftir Giacomo Puccini við góðar undirtektir. Til þess hlutu þær styrk frá Hvatningasjóði ungra listamanna í Garðabæ og Menningarsjóði FÍH. Annað verkefni hópsins voru hátíðartónleikar milli jóla og nýárs 2025 þar sem þær fluttu A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten, í bland við íslensk verk fyrir kvennraddir og hörpu. Í júní næstkomandi munu þær svo endurtaka leikinn með Suor Angelica á Sönghátíð í Hafnarborg.

Söngkonurnar sem skipa Gjallanda að þessu sinni eru:

 

Kristrún Guðmundsdóttir - Suor Angelica

Margrét Björk Daðadóttir - La Zia Principessa

Anna Elísa Axelsdóttir - La Badessa

Anne Keil - La Zelatrice

Steinunn María Þormar - Suor Genovieffa

Bryndís Ásta Magnúsdóttir - Suor Dolcina

Ásta Sigríður Arnardóttir - Una Novizia

Sýningin verður sunginn við píanóundirleik og við slaghörpuna situr Ólína Ákadóttir.

Gjallandi er enn að stíga sín fyrstu skref sem sviðslistahópur og þökkum við Sönghátíð í Hafnarborg kærlega fyrir áhugan og stuðninginn. Næsta verkefni hópsins eru tónleikarnir Dætur Evu — Systur Maríu, í Fella- og hólakirkju 22. ágúst næstkomandi.

 

Anna Elísa Axelsdóttir, La Badessa

Anna Elísa hóf tónlistarnám sitt 6 ára gömul við Tónlistarskólann á Hvammstanga þar sem hún lærði á píanó og fiðlu. Seinna færði hún sig yfir í klassískan söng og kláraði framhaldspróf árið 2024 frá Tónlistarskólanum á Akureyri undir handleiðslu Eydísar Úlfarsdóttur. Nú stundar Anna Elísa nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærir söng undir handleiðslu Hönnu Dóru Sturludóttur, Dísellu Lárusdóttur og Kristins Sigmundssonar. Einnig syngur Anna Elísa í Kór Langholtskirkju, Graduale Nobili og er meðlimur í sviðslistahópnum Gjallandi. Í vor hefur hún tekið þátt í óperunni Sæmundur fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur sem sett var upp af Animato í Tjarnarbío og hlaut 3 Grímutilnefningar.

 

Anne Keil, La Zelatrice

Söngkonan Anne Keil fæddist í Witten í Þýskalandi.  Hún lauk tónlistarnámi í Hamborg með áherslu á söng.  Samhliða því stundaði hún nám í tónlistarmeðferð eftir Valborgar Werbeck-Svärdström hjá Thomas Adam. Hún flutti síðan til Íslands, þar sem hún lauk bakkalársöngnámi við Listaháskóla Íslands. Hún hefur m.a. sungið í kór Íslensku Óperunnar og sungið einsöng í kórverkjum kirkjutónlistar.  Í dag starfar hún sem tónlistarþerapisti fyrir fólk með heilabilun á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum á Íslandi. Hún er einnig virkur raddþjálfari og kórstjóri og kemur reglulega fram bæði sem einsöngvari og í kór. Hún syngur í og stjórnar sönghópnum Ílalei, sem hún stofnaði febrúar 2025. Ílalei sönghópurinn hélt tvo tónleika árið 2025 þar sem flutt var íslensk og eistnesk kórtónlist. Hún er einnig meðlimur í sviðlistahópnum Gjallandi. Í mars 2026 kom hún fram á tónleikaferð í Sviss með verkefni The New Pegasus Project for Visual Music sem var fyrir söng- og ljósakvartett.

 

Ásta Sigríður Arnardóttir, Una Novizia

Ásta Sigríður er söng- og tónlistarkona með rætur í íslenskri þjóðlagatónlist. Lengst af hefur hún spilað og sungið með fjölskylduhljómsveitinni Spilmönnun Ríkínís. Þau hafa spilað á hinum ýmsu hátíðum, bæði hér og erlendis ásamt því að hljóðrita og gefa út tvær hljómplötur. Sú síðari, Gullhetta, fékk tilnefningu sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021. Ásta lauk Bmus gráðu í Söng frá Listaháskóla Íslands vorið 2023. Frá útskrift hefur hún tekið að sér alls kyns fjölbreytt verkefni, bæði á sviði sígildrar- og barokktónlistar og einnig þjóðlagatónlistar. Ásta steig sín fyrstu skref inn í heim óperunnar 15 ára þegar hún lék einn yrðlingana í óperu Gunnsteins Ólafssonar, Baldursbrá. Haustið 2022 frumflutti hún hlutverk Ásu Signýjar í barnaóperunni Skemmtilegt er myrkrið eftir Elínu Gunnlaugsdóttur sem sýnd var í Kaldalóni Hörpu. Og á lokaári sínu í listaháskólanum tókst hún á við hlutverk Paminu í Töfraflautu Mozarts. Undanfarið ár hefur Ásta einbeitt sér að kórsöng í bland við að leika og syngja í uppsetningu Animato af óperunni um Sæmund fróða í Tjarnarbíó.

 

Bryndís Ásta Magnúsdóttir, Suor Dolcina

Bryndís Ásta Magnúsdóttir byrjaði að læra á selló sex ára gömul en hóf söngferil sinn við heimkomu frá búsetu í Svíþjóð, þar sem hún ólst upp. Hún lærði söng undir handleiðslu Guðrúnar Jóhönnu Jónsdóttur, Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur og Þóru Björnsdóttur í Tónlistarskóla Garðabæjar, og lauk þaðan framhaldsprófi. Í Listaháskóla Íslands lærði hún hjá Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristni Sigmundssyni, Dísellu Lárusdóttur og Matthildi Önnu Gísladóttur og útskrifaðist þaðan vorið 2025. Þar fékk hún að syngja alls konar hlutverk eins og Adele í Leðurblöku Strauss, Papagenu í Töfraflautu Mozarts og Alcinu í La Liberazione eftir Francescu Caccini. Nú er hún í mastersnámi við Konunglega Tónlistarháskólann í Stokkhólmi og lærir þar hjá Åsa Bäverstam og Magnus Svensson. Í náminu fær hún að syngja með sænska útvarpskórnum og kemur fram sem einsöngvari í ýmsum kirkjum Stokkhólms. Vorið 2024 hlaut Bryndís Ásta þriðju verðlaun í háskólaflokk söngkeppninnar Vox Domini. Bryndís hefur hlotið styrki úr sjóði Halldórs Hansen, Jóns Stefánssonar og Sonum Kristjáns. Hún er einn stofnenda sviðslistahópsins Gjallanda. Í Stokkhólmi stjórnar Bryndís StokkhólmSkónum, Kór Íslendinga í Stokkhólmi. Í sumar flytur hún hlutverk Yvette í La Rondine á La Musica Lirica á Ítalíu. Bryndís var valin eftir áheyrnaprufu að koma fram með KTH:s Akademiska Kapell - sinfoníuhljómsveitinni haustið 2026.

 

Kristrún Guðmundsdóttir, Suor Angelica

Kristrún Guðmundsdóttir hóf sitt tónlistarnám sjö ára gömul þegar hún lærði á fiðlu við Tónlistarskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Árið 2021 var leiðinni heitið í söngnám hjá Signýju Sæmundsdóttur í Söngskóla Sigurðar Demetz.

Kristrún er núna í mastersnámi í Codarts í Rotterdam þar sem hún hefur tekið í verkefnum á vegum skólans svo sem Offenbach opera production, Concertgebouw og De Doelen.

 

Margrét Björk Daðadóttir, La Zia Principessa

Margrét Björk Daðadóttir hóf söngferil sinn 13 ára í Gradualekór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar og fór svo að stunda klassískt söngnám í Söngskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Hörpu Harðardóttur, þaðan sem hún lauk framhaldsprófi haustið 2021. Vorið 2022 hlaut Margrét Björk fyrstu verðlaun í framhaldsflokki í söngkeppninni Vox Domini. Margrét lauk bakkalárgráðu í söng í Listaháskóla Íslands vorið 2025. Haustið 2024 fór hún í skiptinám í Konunglega Tónlistarháskólann í Haag þar sem hún lærði hjá Amand Hekkers. Margrét hefur sungið í fjölda verkefna og ópera, svo sem Madama Butterfly í uppsetningu Íslensku Óperunnar, Brím eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson og Adolf Smára Unnarsson, Sæmundi Fróða eftir Þórunni Guðmundsdóttur og söngleiknum Kabarett í uppsetningu Leikhúsi ókunnuga fólksins í Þjóðleikhúskjallaranum. Margrét er einnig stofnmeðlimur í sviðslistahópnum Gjallandi. Margrét leggur mikla áherslu á kórsöng og syngur með fjölmörgum kórum svo sem Barbörukórnum, Schola Cantorum, Yrkju og Graduale Nobili.

 

Steinunn María Þormar, Suor Genovieffa

Steinunn María Þormar er söngkona og sellóleikari. Hún útskrifaðist með tvær  Bakkalárgráður frá Listaháskóla Íslands þar sem hún hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í námi með styrk úr sjóði Halldórs Hansens. Nú leggur hún stund við Meistaranám við Konunglegu dönsku tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn. Steinunn María er meðlimur í kammerhópnum Stundarómur sem hefur komið fram víða á Íslandi, til dæmis á tónlistarhátíðinni Seiglu og í Noregi. Hún er einnig meðlimur í Sviðslistahópnum Gjallandi. Steinunn María var í hópi Unglistafólks á Óperudögum 2025 þar sem hún kom fram á hinum ýmsu viðburðum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Sumarið 2025 vann hún, ásamt Ólínu, að söngleik byggðan á verkum Jórunnar Viðar sem hlaut frábærar undirtektir.

 

Ólína Ákadóttir, píanóleikari

Ólína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu, Óperudögum, Asker Kammerkonserter, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig stendur Ólína fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum, þ.á.m. hefur hún sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar, einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu, barnasýningar, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð.