KRISTINN SIGMUNDSSON bassasöngvari lagði stund á söngnám hjá Guðmundi Jónssyni, Helene Karusso og John Bullock. Hann hefur komið fram í óperu- og tónleikahúsum víðsvegar um heim í u.þ.b. þrjá áratugi, svo sem New York, San Francisco, Los Angeles, Milano, London, Berlín, Amsterdam, Brüssel, Tokyo og Beijing. Hann hefur sungið yfir 100 óperuhlutverk. Kristinn hefur haldið marga ljóðatónleika á Íslandi, aðallega með Jónasi Ingimundasyni. Þeir hljóðrituðu Svanasöng og Vetrarferð Schuberts, auk nokkurra diska með íslenskum og erlendum sönglögum. Hann hefur auk þess tekið upp Vetrarferðina með Víkingi Heiðari Ólafssyni. Af öðrum upptökum má nefna Don Giovanni og Töfraflautuna undir stjórn Arnolds Östman (Decca), Jóhannesar- og Mattheusarpassíu Bachs með Franz Bruggen (Phillips) Szenen aus Goethes Faust eftir Schumann undir stjórn Philippe Herreweghe (Harmonia Mundi), Fidelio undir stjórn Sir Colin Davis (London Symphony Orchestra), Die Gezeichneten eftir Franz Schreker, stj. Lothar Zagrosek (Deutsche Grammophon) og síðast en ekki síst, The Ghosts of Versailles eftir John Corigliano undir stjórn James Conlon (Los Angeles Óperan). Sú upptaka vann til tvennra Grammy-verðlauna. Kristinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga og má þar nefna Philadelphia Opera prize og Opernwelt-verðlaunin í Belvedere óperusöngvarakeppninni í Vín, Stämgaffeln - Det klassiska svenska fonogrampriset, Íslensku tónlistarverðlaunin, Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, Bæjarlistamaður Kópavogs, Útflutningsverðlaun Forseta Íslands og Íslandsstofu, Grímuverðlaun - Söngvari ársins og Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna.