Tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6 - 12 ára

 


Mán. 22. júní - fös. 26. júní 2026

6–9 ára: kl. 9:00–12:00

10–12 ára: kl. 13:00–16:00

Tónleikar fös. 26. júní kl. 17:00


 

Opið er fyrir skráningar á Völu. Athugið að fjöldi þátttakenda í sumarnámskeiðunum er takmarkaður. Frekari upplýsingar um sumarnámskeiðin eru veittar í síma 585 5790 eða í gegnum netfangið
[email protected].

www.hafnarborg.is


Hafnarborg og Sönghátíð í Hafnarborg bjóða upp á Tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í Hafnarborg dagana 22. – 26. júní 2026. Unnin verða verkefni í fjölbreytta miðla, bæði í myndlist og tónlist, með það að markmiði að örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu barnanna.
Námskeiðinu lýkur með myndlistarsýningu og þátttöku krakkanna í Fjölskyldutónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg föstudaginn 26. júní 2026 kl. 17:00-17:45.  Aðgangur á tónleikana er ókeypis svo það er tilvalið fyrir stórfjölskylduna og vini að koma og hlusta.

Leiðari í skapandi tónlistarsmiðju er Sævar Helgi Jóhannsson.

Helga Páley Friðþjófsdóttir og Unnur Mjöll S. Leifsdóttir kenna myndlist á námskeiðinu. Sjá vefsíðu Hafnarborgar: https://hafnarborg.is/sumarnamskeid-2026-myndlist-og-tonlist/ 

Staður:
Hafnarborg, Apótekssalur, Strandgötu 34, Hafnarfirði

 


 

Twins 4 copy
IMG_4498
IMG_3748-2_800
IMG_5447
Violin and Trombone copy