Skip to content
Tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6 - 12 ára
Mán. 22. júní - fös. 26. júní 2026
6–9 ára: kl. 9:00–12:00
10–12 ára: kl. 13:00–16:00
Tónleikar fös. 26. júní kl. 17:00
Opið er fyrir skráningar á Völu. Athugið að fjöldi þátttakenda í sumarnámskeiðunum er takmarkaður. Frekari upplýsingar um sumarnámskeiðin eru veittar í síma 585 5790 eða í gegnum netfangið
[email protected].
Hafnarborg og Sönghátíð í Hafnarborg bjóða upp á Tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í Hafnarborg dagana 22. – 26. júní 2026. Unnin verða verkefni í fjölbreytta miðla, bæði í myndlist og tónlist, með það að markmiði að örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu barnanna.
Námskeiðinu lýkur með myndlistarsýningu og þátttöku krakkanna í Fjölskyldutónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg föstudaginn 26. júní 2026 kl. 17:00-17:45. Aðgangur á tónleikana er ókeypis svo það er tilvalið fyrir stórfjölskylduna og vini að koma og hlusta.
Leiðari í skapandi tónlistarsmiðju er Sævar Helgi Jóhannsson.
Staður:
Hafnarborg, Apótekssalur, Strandgötu 34, Hafnarfirði