OPERA GALA

 

Sunday, 28th June at 17:00

 

Harpa Ósk Björnsdóttir soprano

Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzo-soprano

Elmar Gilbertsson tenor

Andri Björn Róbertsson bass-baritone

Matthildur Anna Gísladóttir pianist

Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór, Andri Björn Róbertsson bass-baritón og píanóleikarinn Matthildur Anna Gísladóttir flytja aríur og samsöngatriði úr vinsælum óperum og óperettum eftir tónskáld á borð við Mozart, Delibes, Monteverdi, Bizet, Beethoven, Donizetti, Verdi, Händel og Sullivan. Áhorfendur eru leiddir inn í heillandi heim óperunnar með aðgengilegum kynningum á atriðunum.
Óperugala er orðið að árvissum vinsælum tónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg sem áhorfendur flykkjast að, svo það er vísara að tryggja sér miða í tæka tíð!

 

0655C00A-9AF6-4A09-BE46-37E29F2E4A54

Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran

Harpa Ósk Björnsdóttir söngkona er fædd og uppalin í Kópavogi. Hún hóf að læra söng á Íslandi í Langholtskirkju hjá Þóru Björnsdóttur, því næst við Söngskólann í Reykjavík og síðan í Listaháskóla Íslands hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Þóru Einarsdóttur, Hönnu Dóru Sturludóttur og Kristni Sigmundssyni. Hún lauk mastersnámi við óperudeild bæversku leiklistarakademíunnar August Everding, við Prinzregententheater og Tónlistarháskólann í München í júlí 2024. Áður nam hún við Felix Mendelssohn tónlistarháskólann í Leipzig. Í dag starfar Harpa sem einsöngvari við Theater Basel í Sviss, þar sem hún hefur verið síðastliðin tvö ár. Þar hefur hún sungið m.a. hlutverk Pamínu í Töfraflautunni, Annina í La Traviata, Clorinda í La Cenerentola, sópranhlutverkið í sviðssetningu á Carmina Burana eftir Orff, Woglinde í tveimur óperum eftir Wagner, Das Rheingold og Götterdämmerungen, Frasquita í Carmen eftir Bizet, titilhlutverkið í Das schlaue Füchslein eftir Janáček og Rapunzel í Into the Woods eftir Sondheim. Þessa dagana er hún að sýna nýtt óperu-pasticcio, Don Quijote, undir leiðsögn svissneska leikstjórans Thom Luz þar sem hún syngur hlutverk Chiteria. Harpa kemur reglulega fram sem einsöngvari í hljómsveitarverkefnum, oftast í sópranhlutverki Carmina Burana eftir C. Orff. Þennan veturinn hefur hún sungið verkið með Sinfonieorchester Basel bæði í konsertuppfærslu í Stadtcasino og sviðsettri uppfærslu í Theater Basel undir stjórn Robert Emery, og á þrennum tónleikum með Sinfonieorchester Aachen á tónleikum í Eurogress Aachen og Kölner Philharmonie undir stjórn Christopher Ward. Önnur nýleg hljómsveitarverkefni voru t.d. sópranhlutverkin í Jóhannesarpassíu Bach með Sinfóníu Nord undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar í Hofi, í c-moll messu Mozart með Cantus Basel undir stjórn Olgu Pavlu og Exsultate Jubilate eftir Mozart með Norrlandsoperan sinfóníuhljómsveitinni í Umeå í Svíþjóð undir stjórn Jessica Cottis. Harpa var í úrslitahópi söngvara í Wilhelm Stenhammar International Music Competition í Svíþjóð. Hún var einn sigurvegara í keppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og LHÍ, Ungir einleikarar, og hún hlaut titilinn „Rödd ársins“ í keppninni Vox Domini ásamt því að sigra háskólaflokk og áhorfendaverðlaun keppninnar árið 2019. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og styrki, þar má nefna styrk frá Rótarý, Wagner félaginu í München, Julius Bär, Ingjaldssjóði, Landsbankanum, Ýli og minningarsjóðum Jóns Stefánssonar, Vilhjálms Vilhjálmssonar og Ruthar Hermanns. Hún þreytti frumraun sína með Íslensku óperunni árið 2019 í hlutverki Barbarinu í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart. Önnur verkefni Hörpu á óperusviðinu hafa verið m.a. hlutverk í óperunum Toscu við Oper Leipzig, Hans og Grétu við Oper Halle, Achill unter den Mädchen, Juditha Triumphans, 4:48 Psychosis og Zanaida við Prinzregententheater München, Töfraflautunni í Leipzig og Grimma og með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Næst á dagskrá hérlendis eru m.a. tvenn verkefni með Sinfóníuhljómsveit Íslands, tvennir tónleikar á Seiglu tónlistarhátíð í Hörpu og Jólasöngvar Langholtskirkju. Erlendis verður Harpa m.a. í verkefnum í Þýskalandi og Sviss, þar á meðal í nýrri sviðs-uppsetningu á Carmina Burana, í hlutverki Sophie í Rosenkavalier eftir Strauss og í margskonar konsertverkefnum í Basel.

www.harpaosk.com

 

Andri Björn Róbertsson, bassbarítón

Andri Björn Róbertsson, bassbarítón, er einn af fremstu söngvurum Íslendinga á óperusviðinu. Hann nam við Söngskólann í Reykjavík, the Royal Academy of Music og National Opera Studio í London. Hann var meðlimur Óperustúdíós Óperunnar í Zürich og var Harewood Artist við Ensku Þjóðaróperuna (ENO).

Á næstunni mun Andri syngja hlutverk Nebulous/Activist/Wolf í Masque of Might eftir Purcell/Pountney með Kammeróperunni í Varsjá; bassahlutverkið í 9. sinfóníu Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Edward Gardner; Witness/Madman í Lessons of Love and Violence eftir Sir George Benjamin með London Symphony Orchestra undir stjórn Edward Gardner; og Terry í Breaking the Waves eftir Missy Mazzoli með ENO.

Andri hefur sungið hlutverk Superintendent Budd í Albert Herring (ENO, The Grange Festival); Sprecher í Töfraflautunni, Theseus í Jónsmessunæturdraumi, Nebulous/Activist/Wolf í Masque of Might (Opera North); Erster Priester/Zweiter Geharnischter í Töfraflautunni (Glyndebourne); Priest/Pan/He í King Arthur eftir Purcell (Óperan í Zürich) Leporello í Don Giovanni (Kilden Opera); Fígaró í Brúðkaupi Fígarós (Íslenska Óperan); Basilio í Rakaranum frá Sevilla(Nevill Holt Opera); og Angelotti í konsertuppfærslu af Toscu með Bryn Terfel og Kristine Opolais (Llangollen International Musical Eisteddfod). Andri hefur einnig verið ‘cover´fyrir hlutverk Saul í Saul eftir Handel, Quince í Jónsmessunæturdraumi (Glyndebourne); Toshiro/Kozan í The Great Wave (Scottish Opera); Fígaró í Brúðkaupi Fígarós (Opernhaus Zürich); og Basilio í Rakaranum frá Sevilla (ENO).

Árið 2018 söng Andri hlutverk Witness/Madaman í heimsfrumsýningu á Lessons in Love and Violence eftir Sir George Benjamin hjá Konunglega óperuhúsinu í London, í uppsetningu sem fór síðar til Hollensku Þjóðaróperunnar, Ríkisóperunnar í Hamborg, Óperunnar í Lyon, sem og í konsertuppfærslu með Orchestra de Paris.

Sem meðlimur Óperustúdíósins við Óperuna í Zürich söng Andri meðal annars, Brabantischer Edler í Lohengrin, Fedja Dawidowitsch Pronin í Fälle eftir Oscar Strasnoy, Sprecher í Töfraflautunni og Der König í Die Gänsemagd. Sem Harewood Artist við ENO söng hann Angelotti í Toscu, Theseus í Jónsmessunæturdraumi, Ceprano í Rigoletto og Lord Krishna í Satyagraha eftir Philip Glass.

Andri hefur einnig komið víða fram á ljóðatónleikum, meðal annars á Oxford International Song Festival, í Íslensku Óperunni, Festival d’Aix-en-Provence, í Óperunni í Lille í Norðurljósum og í Salnum í Kópavogi. Debút hljómdiskur Andra, Thorsteinson & Schumann með Ástríði Öldu Sigurðardóttur, píanóleikara, kom út árið 2021 undir merkjum Fuga Libera og fékk frábærar viðtökur.

Andri hefur einnig sungið í fjölmörgum óratoríum, meðal annars í Passíum og H-moll messu Bachs; Messíasi, Saul og Samson eftir Handel; Sköpuninni og Nelson Mass eftir Haydn; Elijah eftir Mendelssohn; Requiem eftir Mozart; Messa di Gloria eftir Puccini; Petite Messe Solennelle eftir Rossini; og Requiem eftir Fauré.

Andri var tilnefndur sem Söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum árin 2022 og 2023, söng í undanúrslitum Queen Sonja söngkeppninnar í Ósló, auk þess að hafa unnið til fjölda annarra verðlauna fyrir söng sinn.

www.andribjornrobertsson.co.uk

 

Sigridur Ósk Kristjánsdóttir, mezzo-sópran

Sigridur Ósk Kristjánsdóttir mezzo-sópran lauk söng- og píanókennaranámi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og óperudeild og meistaragráðu frá Royal College of Music í London. Sigríður Ósk syngur reglulega í óperum, óratoríum og á ljóðatónleikum hérlendis og erlendis.  Meðal óperuhutverka eru: Nunna í Love and Other Demons eftir Peter Eötvös með Glyndebourne óperunni, móðir í Jakob Lenz eftir Wolfang Rihm með English National Opera, Waltraute í Valkyrjunum með LidalNorth í Norksu óperunni, Arcane í Teseo eftir Handel með English Touring Opera, Arbate í Mitridate eftir Mozart með Classical Opera Company. Tisbe í Öskubusku eftir Rossini með Iford Opera. Með Íslensku Óperunni söng hún Rosinu í Rakaranum frá Sevilla, einnig hefur hún sungið Floru Bervoiz í La Traviata og þriðju dömu í Töfraflautunni.  Sigríður Ósk hefur verið einsöngvari með nokkrum af fremstu kórum landins m.a með: Óperukór Reykjavíkur, Mótettukórnum, Dómkórnum, Kór Langholtskirkju, Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræðrum. Sigríður Ósk hefur sungið í tónleikasölum eins og Royal Albert Hall, Kings place, St. Martin in the Field og Cadogan Hall í London en þar söng hún ásamt Dame Emma Kirkby, tónleikunum var útvarpað á Classic FM. Með Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hefur hún tvisvar sungið í Klassíkinni okkar og einnig í 9. sinfóníu Beethovens. Með barokk-bandinu Symphonia Angelica kom hún fram á Listahátíð í Reykjavík, á Sönghátíð í Hafnarborg og á tónleikunum Concerto Grosso-Viking Barokk sem fóru fram í Oslo Konserthus, Berwaldhallen í Stokkhólmi og Musiikkitalo í Helsinki. Söng Sigríðar má heyra á geisladiski „Engel Lund’s Book of Folksongs“, Nimbus Records og á diski með sönglögum eftir Jónas Ingimundarson sem heitir Með vorið í höndunum. Nýverið var hún einsöngvari á Skálholtshátíð og á Berjadögum.  Sigríður Ósk var tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2016 fyrir hlutverk Rosinu með Íslensku óperunni og fyrir hlutverk í óratoríunni Salómon sem flutt var á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju, hún var einnig tilnefnd 2017 fyrir flutning á Lucreziu eftir Händel á Listahátíð í Reykjavík. Árið 2018 fyrir einsöngstónleikana Amoríos hjá Íslensku óperunni og árið 2021 fyrir Chanson Madécasses eftir M.Ravel sem flutt var hjá Kammermúsíkklúbbnum. Sigríður stendur árlega fyrir jólatónleikunum, Sígild jól.

www.sigridurosk.com

 

Elmar Gilbertsson, tenór

Elmar Gilbertsson has been a member of the Stuttgart State Opera ensemble since the 2018-19 season, with performances including as Prince in a new production of Die Liebe zu den 3 Orangen (Achim Ranisch/Alejo Perez), Pylade in Krzysztof Warlikowski’s production of Iphigénie en Tauride, as Narraboth in Salome, Grigory/Jewish Partisan in a new production of Boris Godunov with Titus Engel, Mime in a new production of Das Rheingold (Stephan Kimmich/Cornelis Meister), amongst others. Prior to Stuttgart Elmar Gilbertsson performed Mime conducted by Teodor Currentzis in a new production of Das Rheingold at the RuhrTriennale, and with the NDR Elbphilharmonie under Marek Janowski in Hamburg, Dortmund and at Festspielhaus Baden-Baden. At Théâtre Royal de la Monnaie in Brussels he appeared as Monostatos in Romeo Castellucci’s new production of Die Zauberflöte.

His repertoire also includes roles such as Nerone in Monteverdi’s L’incoronazione di Poppea, Ferrando in Così fan tutte, Don Ottavio in Don Giovanni, both Tamino and Monostatos in Die Zauberflöte, Beppo in Pagliacci, Mime in Das Rheingold, Lensky in Eugen Onegin, Kudrjáš in Janáček’s Katja Kabanowa, Alfred in Die Fledermaus, Chevalier de la Force in Poulencs Dialogues des Carmélites. His vocal symphonic repertoire stretches from Bach’s Christmas Oratorio and Handel’s Messiah via Beethoven’s 9th to Elgar’s Dream of Girontius, Finzi’s Dies Natalis to Britten’s Serenade.

Next to Staatsoper Stuttgart Elmar Gilbetsson appears at the Ruhrtriennale, the Festival d’Aix-en-Provence, the International Janáček Festival in Brno, the National Opera Amsterdam, the Concertgebouw Amsterdam, La Monnaie Brussels, Opera Vlaanderen Antwerp-Gent, Opera Zuid Maastricht, Opéra Royal de Wallonie Liège, Angers-Nantes Opéra, Opéra de Toulon, Harpa Reykjavik, Icelandic Opera Reykjavík and the Barbican Center London.

Elmar Gilbertsson graduated at the Reykjavík Music School and holds a Master degree from the Royal Conservatory of The Hague/Amsterdam as a member of the Dutch National Opera Academy.

Plans include his role debut of Boris in Katja Kabanova, Mime in Das Rheingold, Frère Massée in a new production of Messiaen’s Saint François d’Assise, all at Staatsoper Stuttgart; as well as his company debut at Icelandic National Theatre in the lead role of Daniel Daréus in As It Is In Heaven in September 2022.