HINN EILÍFI SÖNGUR

 

Laugardagur 27. júní 2026 kl. 17:00

 

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran

Halldóra Ósk Helgadóttir sópran

Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari

Bjargey Birgisdóttir fiðluleikari

Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari

Fidel Atli Quintero Gasparsson vióluleikari

Júlía Mogensen sellóleikari

Francisco Javier Jáuregui gítarleikari

Ljóðasöngur með strengjakvartett, píanói og gítar blómstrar á tónleikunum Hinn eilífi söngur á Sönghátíð í Hafnarborg. Titill tónleikanna vísar í hið fagra tregaljóð Chanson perpétuelle eftir Ernest Chausson fyrir söngkonu, strengjakvartett og píanó. Verkið kallast á við þrjú sönglög eftir spænsk/frönsku söngkonuna og tónskáldið Pauline Viardot-García, sem spænski gítarleikarinn og einn af stjórnendum Sönghátíðar í Hafnarborg, Francisco Javier Jáuregui, hefur útsett fyrir rödd, píanó og strengi. Pauline Viardot var virtúósasöngkona á 19. öld en á sömu öld var helsti fiðluvirtúósinn Niccolò Paganini, sem samdi hið fagra Cantabile fyrir fiðlu og gítar sem hér mun hljóma.

Einn frægasti sellóleikari sögunnar var án vafa Pablo (Pau) Casals. Hans eftirlætis aukalag var katalónska þjóðlagið Söngur fuglanna (El cant dels ocells) sem hér er flutt í gullfallegri útsetningu Spánverjans Xavier Montsalvatge fyrir söngkonu, selló og píanó. Á tónleikunum má einnig heyra hið fræga verk Zwei Gesänge (Tveir söngvar) eftir Johannes Brahms fyrir mezzósópran, víólu og píanó, m.a. við ljóð eftir spænska gullaldarljóðskáldið Lope de Vega, sem samdi líka ljóðið við lagið Pastorcito Santo eftir Joaquín Rodrigo, sem hljómar fyrir söngrödd og klassískan gítar.

Sönghátíð í Hafnarborg styrkir klassísku söngkeppnina Vox Domini með því að gefa sigurvegaranum, Rödd ársins, tækifæri til að koma fram á hátíðinni. Í ár er það sópransöngkonan Halldóra Ósk Helgadóttir sem er handhafi verðlaunanna og gleður eyru áheyrenda með því að syngja ljóðaflokkinn Mädchenblumen eftir Richard Strauss með Þóru Kristínu Gunnarsdóttur píanóleikara.

Verið velkomin á þessa fjölbreyttu kammertónleika á Sönghátíð í Hafnarborg. Flytjendur eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Halldóra Ósk Helgadóttir sópran, Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanó, Sólveig Steinþórsdóttir fiðla, Bjargey Birgisdóttir fiðla, Fidel Atli Quintero Gasparsson víóla, Júlía Mogensen selló og Francisco Javier Jáuregui gítar.

Tónleikarnir eru styrktir af Spænska sendiráðinu á Íslandi og AECID (Agencia Española de Cooperación Internacional para el Desarrollo). Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Forsölutilboð til 3. júní.

Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.