MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fimmtudagur 25. júní 2026 kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar á master class námskeiði syngja sönglög og aríur
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari
Master class tónleikar á Sönghátíð í Hafnarborg. Nemendur Kristins Sigmundssonar á master class og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari flytja sönglög og aríur sem þau hafa unnið að á fjögurra daga námskeiði. Flytjendur eru söngvarar og söngnemendur á mismundandi aldri og stigi á sínum ferli sem hafa lokið miðprófi, framhaldsprófi eða háskólanámi í einsöng. Nöfn söngvaranna munu birtast á Facebook viðburði hátíðarinnar þegar nær dregur.
Forsölutilboð til 10. júní.
Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.
