SUOR VEGURINN ENDALAUSI
Sunnudagur 21. júní 2026 kl. 17:00
Stuart Skelton tenór
Liam Kaplan píanóleikari
Ein skærasta stjarna óperuheimsins í dag, ástralski hetjutenórinn Stuart Skelton, kemur fram á einstökum tónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg, en fyrr á þessu ári söng hann m.a. í Tristan og Isolde við Metropolitan óperuhúsið í New York. Það er mikill fengur fyrir alla unnendur sönglistar að sjá og heyra þennan alþjóðlega stórsöngvara í eins miklu návígi og Hafnarborg býður upp á. Á tónleikunum Vegurinn endalausi (The Unending Path) flytja Stuart Skelton og píanóleikarinn Liam Kaplan, sem er fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands, sönglagaflokkana frægu Songs of Travel eftir Ralph Vaughan Williams, Lieder eines fahrenden Gesellen eftir Gustav Mahler, Unvergänglichkeit eftir Erich Wolfgang Korngold og ástkær sönglög eftir Henri Duparc.
Missið ekki af þessu fágæta tækifæri til að hlusta á söngtónleika á heimsmælikvarða, í menningarmiðstöð Hafnarfjarðar.
Missið ekki af þessu fágæta tækifæri til að hlusta á söngtónleika á heimsmælikvarða, í menningarmiðstöð Hafnarfjarðar.
Forsölutilboð til 3. júní.
Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.
Stuart Skelton, tenór
Stuart Skelton, tenór, hefur sungið í helstu óperuhúsum heims, Metropolitan-óperunni í New York, La Scala, óperuhúsunum í Seattle og San Francisco, Royal Opera House Covent Garden, Ensku þjóðaróperunni (ENO), Parísaróperunni, Teatro Real, Ríkisóperunni í Berlín, Deutsche Oper í Berlín, Bavarian og Hamburg State Opera, Dresden Samperoper og Vínaróperunni. Meðal helstu hlutverka hans eru Lohengrin, Parsifal og Peter Grimes auk Florestan í Fidelio, Erik í Hollendingnum fljúgandi, Bakkus í Ariadne á Naxos og Siegmund í Niflungahringnum.
Skelton hefur einnig komið fram með Sinfóníuhljómsveitunum í Atlanta, Boston, Chicago, Cleveland, San Francisco og Montreal með Fílharmóníusveitinni í Los Angeles, Sinfóníuhljómsveit Lundúnaborgar og Sinfóníuhljómsveitunum í Sydney og Melbourne. Hann hefur komið fram á tónlistarhátíðunum í Salzburg, Edinborg, Baden-Baden, Aix-en-Provence, Luzern og á BBC Proms og unnið með hljómsveitarstjórum á borð við Vladimir Ashkenazy, Daniel Barenboim, Christoph von Dohnányi, Christoph Eschenbach, Mariss Jansons, James Levine, Lorin Maazel og Sir Simon Rattle.
Liam Kaplan, píanóleikari
Píanóleikarinn og tónskáldið Liam Kaplan hefur verið píanóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan árið 2024. Liam hefur komið fram á ýmsum tónleikaröðum á Íslandi, þar á meðal Tíbrá í Salnum í Kópavogi, með Kammermúsikklúbbnum og 15:15. Hann hefur komið fram sem einleikari með Oberlin Sinfonietta, Oberlin Orchestra, og Aspen Conducting Academy Orchestra. Liam var meðlimur Aspen Contemporary Ensemble árin 2022–23 og hefur hann frumflutt mörg ný verk með þeim. Herdís Mjöll Guðmundsdóttir frumflutti fiðlukonsert Liams með Tim Weiss og Oberlin Contemporary Ensemble árið 2020. Hann hefur gefið út tvær einleiksplötur sem innihalda seinni hluta Das Wohltemperierte Klavier og Goldberg tilbrigðin eftir J.S. Bach. Seinni plata Liams inniheldur einnig 8 Prelúdíur eftir hann sjálfan og Orpheus Suite eftir Elizabeth Ogonek. Liam lauk bakkalárgráðu við Oberlin Conservatory þar sem hann lærði píanóleik hjá Alvin Chow og tónsmíði hjá Stephen Hartke. Ásamt því að vera píanóleikari, vinnur Liam sem útsetjari og nótnasmiður fyrir fyrirtæki eins og Boosey & Hawkes og fyrir tónskáldin John Adams og Clarice Assad.
