FAMILY CONCERT

Friday, 26th June at 17:00

 

Solveig Óskarsdóttir singer

Sævar Helgi Jóhannsson pianist

Solveig Óskarsdóttir, sópran og Sævar Helgi Jóhannsson, píanóleikari og tónskáld, bjóða ykkur velkomin á fjöruga fjölskyldutónleika á Sönghátíð í Hafnarborg. Efnisskráin er fjölbreytt þar sem lögð er áhersla á samsöng og virka þátttöku áheyrenda. Einnig munu 6-12 ára nemendur í skapandi tónlistarsmiðju Sævars stíga á stokk og sýna afrakstur smiðjunnar síðustu fimm daga. Ókeypis inn og öll velkomin.

Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu Hafnarborgar og Sönghátíðar í Hafnarborg. Við þökkum Barnamenningarsjóði Íslands fyrir að styrkja verkefnið.

Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.

 

Solveig Óskarsdóttir, söngkona

Solveig Óskarsdóttir hóf söngnám sitt í Söngskólanum í Reykjavík þar sem hún lærði hjá Hörpu Harðardóttur. Hún útskrifaðist síðar með BMus í söng frá LHÍ undir handleiðslu Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristins Sigmundssonar, Þóru Einarsdóttur og Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Master í Óperu frá Conservatorium Maastricht þar sem hún lærði hjá Prof. Susanne Schimmack og Abigail Richards.

Solveig leggur áherslu á 20. aldar og samtímatónlist, auk þess sem hún hefur dálæti á norrænum sönglögum. Hún hefur sungið með fjölmörgum kórum, bæði sem kórmeðlimur og einsöngvari, m.a. Kór Langholtskirkju og Graduale Nobili, og með ýmsum smærri sönghópum. Hún var einnig meðlimur í Young Nordic Opera Choir.

Solveig er annar helmingur ljóðadúósins Áróru, ásamt píanistanum Önnu Þórhildi Gunnarsdóttur, sem var stofnað í Maastricht og kom þar fyrst fram á Night of classical music. Þær hafa hlotið ýmsa styrki til tónleikahalds, m.a. frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands sem styrkti þær til tónleikaferðalags um Vesturland 2023 og Ýli, tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk, sem styrkti þær til tónleikahalds vorið 2025.

 

Sævar Helgi Jóhannsson, píanóleikari

 

Sævar Helgi Jóhannsson er starfandi tónskáld, kennari og píanóleikari. Hann stundaði bæði klassískt og rythmískt píanónám, fyrst við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og síðar FÍH, áður en hann hóf nám við Listaháskóla Íslands, þaðan sem hann útskrifaðist með BA gráðu í Tónsmíðum. Áhrifamiklir kennarar Sævars voru Sunna Gunnlaugsdóttir, Kjartan Valdemarsson og Eyþór Gunnarsson. Sævar er mjög fjölhæfur tónlistarmaður með fjölþætt verksvið. Hann starfar við hin ýmsu verkefni ásamt því að kenna við Söngskólann í Reykjavík og Tónskóla Reykjavíkur. Sævar semur mikið af tónlist fyrir leikhúsuppfærslur og stuttmyndir, starfar sem tónlistarstjóri við óperuuppfærslur, leiðir tónlistarsmiðjur fyrir fólk í endurhæfing og er aðstoðarstjórnandi hljómsveitarinnar Kordu Samfóníu. Sævar hefur gefið út sex hljómplötur með eigin tónlist, bæði undir fyrra listamannanafni Shel og undir nafni sínu Sævar Jóhannsson. Sjötta plata Sævars, Quiet Presence hlaut verðlaunin plata ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2026. Nýleg verkefni Sævars sem vert er að nefna eru tónlistarstjórnun við fjórar óperu uppfærslur óperufélagsins Óður, en félagið hlaut verðlaunin Flytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2026. Einnig samdi Sævar tónlist við stuttmynd Kötlu Sólnes, Emblu, í samstarfi við Mariu-Carmelu Raso, en myndin hlaut tvenn verðlaun á Stockfish kvikmyndahátíðinni.