FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Föstudagur 26. júní 2026 kl. 17:00
Solveig Óskarsdóttir söngkona
Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari
Solveig Óskarsdóttir, sópran og Sævar Helgi Jóhannsson, píanóleikari og tónskáld, bjóða ykkur velkomin á fjöruga fjölskyldutónleika á Sönghátíð í Hafnarborg. Efnisskráin er fjölbreytt þar sem lögð er áhersla á samsöng og virka þátttöku áheyrenda. Einnig munu 6-12 ára nemendur í skapandi tónlistarsmiðju Sævars stíga á stokk og sýna afrakstur smiðjunnar síðustu fimm daga. Ókeypis inn og öll velkomin.
Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu Hafnarborgar og Sönghátíðar í Hafnarborg. Við þökkum Barnamenningarsjóði Íslands fyrir að styrkja verkefnið.
Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.
